Well well....komin heim úr sumarbústað með familíunni
Æðisleg
helgi að baki, bara chill og næs! Reyndar gengum við öll upp á
Grábrók í gær, sem var bara gaman, þó það taki nú ekki langan tíma!
Maður er nú ekkert í neinu fanta formi heldur...haha! En þetta
hafðist nú samt!
Köben var hreinasta snilld!! Fengum geggjað veður á mánudeginum
og hittum einmitt mömmu og pabba á Kongens Nytorv. Veðrið var svo
sæmilegt hina dagana! Annars vorum við Þura orðnar snillingar í
strætókerfinu um leið...þó þarf kannski ekki mikla snilligáfu
til...haha!! Mjög einfalt og þægilegt strætókerfi hjá frændum okkar
þarna í Baunalandinu! Það var mikið hlegið, drukkið, verslað og
dansað! Ballið með Sálinni og Stuðmönnun var bara klassi, hitti þar
fyrir gamla og nýja vini, fullt af Skagamönnum auðvitað líka! Þeir
láta sig nú ekki vanta á svona stórdansleik
Ég held að ef
þetta verði að árlegum viðburði, að þá láti maður sig ekki vanta á
næstu árum
Heimsóttum auðvitað Elvu, Gumma og krakkana í Rödövre...(borið
fram með dönskum hreim of course..hehe). Guðmundur meistarakokkur,
hristi fram úr erminni dýrindis kvöldmáltíð handa okkur sem var
alveg prýðilegt eftir langan dag á Ströjinu
Takk fyrir okkur bara
Hittum Írisi Danmerkurbúa og vini hennar, Gummi Þór og Sturri
komu deginum á eftir okkur ásamt Önnu Heidi, þannig að þetta var
alveg hin glæsilegasta ferð!
Skelli hér nokkrum myndum úr sólinni með!





Annars er það í fréttum að við stöllurnar erum á síðustu
metrunum með lokaverkefnið! Bara smá sans eftir og svo nottla senda
kvekindið í prentun! Vúhúúú! Get bara hreinlega ekki beðið eftir að
þetta verði búið! (Hef ég nokkuð sagt þetta áður...hahaha)!!
Styttist óðum í Tæland...sléttur mánuður í dag!
Meira var ekki í fréttum í bili...gangið á Guðs vegum börnin
mín
...þangað til næst!
Knús knús