Bloggsíða

Ásu Þóru

02.07.2007 21:15:59 / Ása Þóra

írskir dagar nálgast óðfluga!

Eru ekki allir að fara að mæta á lopapeysuballið víðfræga á laugardaginn? Djöfull er ég orðin spennt! (afsakið orðbragðið...hehe). Mér heyrist á öllum að það verði þrusu góð mæting, sem er ekkert nema snilld! Þar sem ég er að vinna á Versló, þá held ég að maður taki þetta með trompi núna sko:haha: Sýnist líka veðurspáin vera ágæt alveg, allavega engin stórviðri í kortunum8)

Annars er ekkert að frétta svosem...bara vinna á fullu þessa dagana, sem er bara gaman! Brjálað að gera alltaf, þannig að vaktirnar líða þvílíkt hratt.

Hvað á maður samt að gera þegar maður er með ferðalagaflugu í rassinum:(  ég er að drepast mig langar svo að taka heimsreisu á þetta!! Er ekki að skilja þetta alveg, því yfirleitt hef ég verið þvílíkt heimakær. Vona að maður fái séns á því að ferðast soldið núna í nánustu framtíð...sé því svosem ekkert til fyrirstöðu, þarf bara að finna peningatré og svoleiðis fyrst...hahaha! Ég hlýt að detta um eitt slíkt fyrr eða síðar, eins og ég er dettandi um alla riddarana á hvítu....hahah:lol:

En jæja...næturvakt á eftir, best að taka smá leggju á þetta

Knús á ykkur 

Þura skrifaði
Heimsreisa já..... tökum Færeyjar og Grænland fyrst.. síðan Ítalíu .... París þegar riddarinn er kominn og núna mátt þú velja... :o)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Klukkan