Bloggsíða

Ásu Þóru

16.01.2008 20:56:57 / Ása Þóra

It´s aliiiive

Jæja, ég var nú bara að skoða yfir gamlar færslur hjá mér og rakst á þetta...haha! Fannst tilvalið að smella þessu inn þar sem þrítugs...nálgast óðfluga! Er meiraðsegja ekki frá því að það sé nokkuð til í þessu8| Gott ef ég hafi ekki hitt einn um daginn sem fyllir uppí 30 ára listann...ja eða svona næstum því allavega:haha: 

Enjoy og hafið það gott;)

 

Hvernig á draumamaðurinn að vera? Endurskoðaður listi með árunum

Upprunalegur list - 20 ára
Mjög myndarlegur.
Spennandi og skemmtilegur.
Flott klæddur, samkvæmt nýjust tísku.
Þekktur eða á þekkta foreldra.
Á flottan bíl.
Rómantískur.
Fer létt með að segja góða brandara.
Bráðgáfaður.
Er í arðbæru námi eða stefnir á það.
Býður stundum út að borða.

Endurskoðaður listi - 30 ára
Myndarlegur.
Heillandi.
Vel stæður.
Umhyggjusamur hlustandi.
Fyndinn.
Í góðu líkamlegu formi.
Smekklega klæddur.
Kann gott að meta.
Hugulsamur og kemur á óvart.
Hugmyndaríkur og rómantískur elskhugi.

Endurskoðaður listi - 40 ára
Myndarlegur, helst með hár á höfðinu.
Opnar bíldyr.
Á nóg af peningum til að bjóða upp á góðan kvöldverð.
Hlustar meira en hann talar.
Hlær að bröndurunum þínum.
Getur auðveldlega haldið á innkaupapokum.
Á að minnsta kosti eitt fallegt bindi.
Kann að meta góðan heimatilbúin mat.
Man afmælisdaga og brúðkaupsafmæli.
Er rómantískur minnst einu sinni í viku.

Endurskoðaður listi - 50 ára

Ekki of ljótur en má vera sköllóttur.
Ekur ekki af stað fyrr en þú ert komin inní bílinn.
Er í föstu starfi.
Splæsir stundum í pulsu.
Kinkar kolli þegar þú talar.
Getur yfirleitt sagt brandara án þess að gleyma aðalatriði hans.
Er í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi til að geta fært til húsgögn.
Gengur í skyrtum sem hylja ístruna.
Veit að hann á ekki að kaupa kampavínsflöskur með skrúfuðum tappa.
Man eftir að setja klósettsetuna niður.
Rakar sig yfirleitt.

Endurskoðaður listi - 60 ára
Snyrtir nasahárin og hárin í eyrunum á sér.
Ropar hvorki né klórar sér á almannafæri.
Fær ekki oft lánaða peninga hjá þér.
Sofnar ekki á meðan þú talar.
Segir ekki sama brandarann oft.
Er í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi til að komast upp úr sófanum um helgar.
Er yfirleitt í íþróttasokkum og hreinum nærbuxum.
Kann að meta góðan örbylgjumat yfir sjónvarpinu.
Man alltaf nafnið þitt.
Rakar sig um helgar.

Endurskoðaður listi - 70 ára
Hræðir ekki lítil börn.
Man hvar baðherbergið er.
Þarfnast ekki mikilla peninga til framfærslu.
Hrýtur bara þegar hann sefur.
Man hvers vegna hann er að hlæja.
Er í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi til að geta staðið upp hjálparlaust.
Er venjulega í fötum.
Vill helst mat sem ekki þarf að tyggja.
Man hvar hann skildi tennurnar eftir.
Man að það er helgi.

Endurskoðaður listi - 80 ára
Andar

Þura skrifaði
NAU NAU... ég hélt ég væri komin inn á vitlausa síðu.. hahahahaahah
Eva Björk skrifaði
Ég vil einn á þrítugsaldri and stay there;). Hlakka til að fá ykkur alveg bunch;)
Jóna sæta skrifaði
Held að þetta segji manni að maður nálgast 30 aldurinn MJÖG hratt er sammála Evu skvís að það er endurskoðaður listi hérna meigin og ef þú finnur einn svona þá endilega hafðu samband;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Klukkan